top of page
Starrahus logo langt (2).png

Skilalýsing - Starri 14.9 fm - Standard

Húsið kemur full frágengið að utan. Frágengið kringum glugga og hurðir. Klárt til að setjast á undirstöður, á tveimur dregurum. Þakið er einhalla. Klárt til flutnings.

 

Klárt til að tengja rafmagn við húsið. 1 stk af gluggum. Staðsetning samkvæmt teikningu Litur á gluggum er hvítur. Gluggar með vatnsbretti og frágangslistum.

● Gluggi 1 ( 60 x 60 cm ) Opnanlegur

 

Byggingarlýsing: Gólf : er byggt upp með 45x145 mm timbri með 60 cm millibili. Gólfið er einangrað með 145 mm steinull. Undir gólfbita er 12 mm krossviður. Ofan á gólfbita koma síðan 22 mm rakavarðar gólfspónaplötur sem eru límdar að auki, til að koma í veg fyrir brak.

 

Veggir: eru byggðir með 45x95 mm timbri með 60 cm millibili. Utan á veggjagrind er negldur 9 mm krossviður í lím, sem styrkir og stífar húsið. Þar utan á kemur síðan lektu grind 34x45 mm sem tryggir góða loftun undir klæðningu. Síðan kemur standandi furu vatnsklæðning. Veggir einangraðir með 95mm steinull , rakavarnarlag og lektu grind, klárt til að klæða að innan.

 

Þak : Þak er byggt úr 45 x 145 mm timbri med cc 60 cm. Þak er einangrað með 120 mm steinull með vindpappa að ofan. Til að tryggja góða loftun. Ofan á þaksperrur er síðan klætt með mótatimbri. 25x145 mm. Síðan kemur sterkur og góður þakpappi, og að lokum er þakið klætt með bárujárni, áfellur niður á þakkant. Neðan í þaksperrur kemur síðan rakavarnarlag og lektu grind. Síðan eru 2x 32mm loftunarrör milli allra sperruenda.

Útihurð: Stærð er 80-90 x 200 mm. Með hurð fylgir vatnsbretti undir, ásamt frágangslistum.

bottom of page